Leita

Leita á vefsíðu

Reyklosun

Við bjóðum upp á reyklosunarlúgur og reyklosunarristar frá framleiðendum á borð við Nytec, Lamilux og Colt. Reyklosunarbúnaðurinn okkar fæst í mörgum stærðum, lögun og mismunandi lokun svo hægt sé að uppfylla óskir og kröfur viðskipatvinarinns.

Öryggi. Eins eru ýmsar útfærslur á opnunarbúnaði. Reyklosunarbúnaðurinn er hannaður til að losa út lífshættulegum reyk og skapa reykfríar flóttaleiðir. Eins auka þær öryggi slökkviliðs í baráttu við eld og reyk. Reyklúgurnar henta því vel fyrir stigahús og ganga. Þær henta einnig vel fyrir samkomusali, iðnaðarhúsnæði og verslunarbyggingar.

Gæðavottun. Reyklúgurnar eru CE merktar sem þýðir að þær eru prófaðar og viðurkenndar samkvæmt Evrópustaðli EN 12101-2:2004.

Valkostir. Lokunina má fá sem kúpul, blikklokun eða höggþolið fjölveggja plexigler. Opnunarbúnaðurinn fæst með gas/fjöður útfærslu, bræðsluöryggi og rafmótor. Ramminn fæst í nokkrum útfærslum, hæðum og mismunandi efni. Ristarnar eru fáanlegar í ýmsum stærðum og gerðum.

Hafa samband

Gagnlegar upplýsingar

Tegund

Reylkosunarlúga, Reyklosunarrist

Framleiðendur

Nytec, Lamilux, Colt

Hæð

Fáanlegt í mörgum hæðum

Breidd

Fáanlegt í mörgum breiddum

Hafðu samband

Þessi síða er vernduð af reCAPTCHA og persónuverndarstefna og þjónustuskilmálar Google gilda.