Kerfismót úr áli
Álmótin (Alu-Framax Xlife) eru létt og meðfærileg, sem gerir alla uppsetningu fljótlega og einfalda — kjörin lausn þar sem handhægni skiptir máli.
Kerfismót úr stáli
Stálmótin (Framax Xlife) eru sterk og auðveld í notkun — hvort sem þau eru látin standa lóðrétt eða lárétt.
Bitamót
Þegar sjónsteypa krefst nákvæmrar staðsetningar á kónagötum eru Doka-bitamótin lausnin — útlit, stærð og kónagatamynstur má aðlaga að nánast hverju sem er.
Bogamót
Með Bogamótum er hægt að móta radíus frá 3,5 m og uppúr — og allt niður í 2,5 m (eða neðar) með því að skipta um krossvið.



