Leita

Leita á vefsíðu

Báruklæðningar á þök

Áltak valsar báruklæðningar á þök úr lituðu áli og ólituðu Aluzinki hér heima. Íslensk framleiðsla þýðir styttri afgreiðslutíma, meiri sveigjanleika og þakkápu sem er hönnuð fyrir íslenskar aðstæður frá fyrstu plötu. Álið ryðgar ekki, heldur útliti sínu og ver þakið í roki, rigningu og seltu — áratugum saman með lágmarks viðhaldi.

Íslensk framleiðsla sem stenst íslenskt veður

Bára er klassísk og hagkvæm þaklausn sem hentar jafnt íbúðarhúsum, atvinnu- og iðnaðarbyggingum. Formin gefa þakinu áferð og karakter, og álið tryggir langan líftíma.

Þrjú form eftir útliti og áferð:

Klassísk bára (18/76) — tímalaus og fjölhæf

Stór bára (28/128) — kröftug form fyrir stóra þakfleti

Stölluð bára (33/175) — mjúk, lifandi hreyfing

Álið er 0,7 mm og fæst í þeim lengdum sem henta þínu þaki; flasningaefni koma í 0,7 / 1,0 / 2,0 mm. Afgreiðslutími er aðeins 2–4 dagar.

Einnig framleiðum við kúlukili, skotrennur og snjógildrur í sama lit.

Báruþök frá Áltaki er sterk, endingargóð og hagkvæm lausn.

Tegund

Þakklæðning

Gerð

Báruklæðning

Undirgerð

Novelis

Þykkt

0,7/1,0/2,0 mm

Vörunúmer

WEB_THKL_BRKL

Skjöl


Kúlukilir og skotrennur

pdf

Snjógildrur

pdf

Rothoblaas þak samsetning

pdf

Hafðu samband

Þessi síða er vernduð af reCAPTCHA og persónuverndarstefna og þjónustuskilmálar Google gilda.