
Hljóðpanelar Lumière
Lumière Soft Panels eru vandaðar textílklæddar glerullarplötur, sem notaðar eru til að bæta hljóðvist. Plöturnar eru til í ýmsum stærðum og gerðum, sem má aðlaga að hverskonar hönnun. Með textílklæddum hljóðvistarplötum skapast hlýlegt umhverfi, þar sem bæði fagurfræði og góð hljóðvist er höfð að leiðarljósi.
Glerullarplöturnar sjálfar eru hágæðavara sem hafa sérstaklega gott hljóðísog.
Textílefnið er vandað og afar slitsterkt, hefur m.a. staðist núningsprófun fyrir klassa A. Efnið er unnið úr endurunnu plasti.
Margir litir og form í boði, sem hægt er að blanda saman. Möguleikarnir eru nánast endalausir.
Hafa samband



Fylgiskjöl
Bæklingur um Lumière Soft Panels



