Bætt hljóðumhverfi með veggjapanelum
Hljóðdempandi veggjapanelar eru lykillausn til að bæta hljóðvist í rýmum þar sem hávaði og endurómur hafa áhrif á líðan og afköst. Með því að taka á hljóðendurkasti frá veggjum er hægt að draga verulega úr hávaða og bæta talgreinileika.
Lausnirnar henta jafnt í skrifstofur, skóla, heilbrigðisumhverfi og opin rými þar sem kröfur um góða hljóðvist eru miklar. Þær eru sérstaklega árangursríkar sem viðbót við loftlausnir og hjálpa til við að ná jafnvægi í heildarhljóðvist rýmisins.
Panelarnir eru með glerullarkjarna sem tryggir framúrskarandi hljóðgleypni og eru fáanlegir í fjölbreyttum stærðum, formum og litum. Þannig er hægt að sameina tæknilega frammistöðu og vandaða hönnun – hvort sem markmiðið er að láta lausnina falla inn í umhverfið eða skapa sjónrænan fókus.
Hljóðlausnir á veggi eru einföld og áhrifarík leið til að bæta vinnuumhverfi, vellíðan og upplifun í nútímalegum rýmum.

Akuart
Skreyttu með hljóðvist.
Búðu til þitt eigið listaverk og bættu hljóðvistina í leiðinni.
Góð hljóðvist er gríðarlega mikilvæg og bíður Akuart upp á marga flotta möguleika fyrir öll rými ásamt því að varan er endurnýjanleg.
- Þetta eru myndir ( rammar ) sem eru 50mm á dýpt og stærðir allt að 1x3 metrar.
- Fyrir veggi, hangandi úr lofti eða sem skilrúm.
- Hægt er að skipta út yfirborði að vild og breyta um myndir þegar hentar.
- Framleiðandi sér um að prenta mynd að vild á yfirborðið.
- Hægt er að bæta rýmið með myndum sem og bæta hljóðvist um leið.

Topakustik
TOPAKUSTIK® framleiðir hljóðpanela fyrir allar gerðir húsnæða.
Þegar komið er inn í rými er það hönnunin sem fyrst er tekið eftir - víddin, efnið og yfirborðið. Um leið verðum við meðvituð um hljómburð, heyrum hljóðgæðin og könnum fegurðina.
Frá 1991 hefur TOPAKUSTIK® fylgt ástríðu sinni í að sækjast eftir sjónrænni og heyrnar fegurð í innra rými. TOPAKUSTIK® vandlega aðlagar einfalda hönnun í rými til að ná fram ákjósanlegustu hönnun út frá fagurfræðilegu og hljóðeðlisfræðilegu sjónarmiði. TOPAKUSTIK® notar einungis hágæða efni í panel kerfið og framleiðir þá samkvæmt sérstökum kröfum viðskiptavinarins. TOPAKUSTIK® teymið skapar fullkomnar lausnir sem eru bæði listræn og notaleg við eyrað.
Vörurnar frá TOPAKUSTIC® henta íþróttasölum, heilbrigðisstofnunum, kaffi- og matsölustöðum, skólum, skrifstofum, heimilum o.fl. Margir möguleikar eru fyrir hendi og reyna þeir að mæta þörfum hvers og eins.
Skoða birgja
Ecophon
Akusto línan sameinar tæknilega frammistöðu og mikinn hönnunarsveigjanleika. Panelarnir eru fáanlegir í fjölbreyttum stærðum, formum og litum – allt frá hefðbundnum einingum upp í hringlaga og sérhannaðar lausnir – sem gerir kleift að skapa bæði látlaust yfirbragð eða áberandi hönnunaratriði á veggjum.
Kjarni panelanna er úr glerull sem tryggir mjög háa hljóðgleypni (Class A), ásamt góðu eldþoli og endingu. Þetta gerir Akusto að áreiðanlegri lausn í fjölbreyttu umhverfi, svo sem skrifstofum, skólum, heilbrigðisstofnunum og verslunum.
Yfirborðslausnir eins og Texona, Akutex og Super G bjóða upp á mismunandi áferð og slitstyrk, sem gerir auðvelt að velja rétta lausn fyrir hvert verkefni – hvort sem áherslan er á fagurfræði, endingarþol eða sérstakar kröfur um umhirðu og þrif.
Skoða birgjaEcophon

Decibel
Panelar frá Decibel henta einstaklega vel til að bæta hljóðgæði í hvaða rými sem er. Panelarnir koma í mörgum gerðum og lögum og eru því tækifærin fyrir sköpunargleðina mjög mörg.
Skoða birgja
Troldtekt
Troldtekt framleiðir tréullarplötur og eru þær fáanlegar í kerfisloft, uppskrúfaðar, og steyptar í plötu.
Troldtekt Acoustic loft- og veggpanelar eru úr 100% náttúrulegum efnum; tré og sement. Þessi samsetning af tré og sement skapar Troldtekt einstaka hljóðvistar eiginleika sem tryggja ótrúlega hljóðdempun í hvaða rými sem er.
Eiginleikar
- Efnið hefur náttúrulega seiglu í röku umhverfi, en veitir einnig góða eldvörn.
- Troldtekt er í boði í margskonar samsetningum sem eru breytileg eftir yfirborði uppbyggingu, brún, uppsetningu kerfisins, lit, vídd og þykkt. Lausnir okkar gefa þér einnig tækifæri til að samþætta og leyna t.d. hátölurum í Troldtekt loftum.
- Sérstaklega hönnuð lýsing, skreytingar og margir aukahlutir eru einnig í boði hjá Troldtekt. Þú getur hannað þitt eigið loft með því að smella á hlekk til hliðar.

Lumière
Lumière Soft Panels eru textílklæddir hljóðdempandi panelar sem sameina framúrskarandi hljóðvist og mikla hönnunarmöguleika. Panelarnir draga úr hávaða og endurómi og skapa þannig mýkra og þægilegra hljóðumhverfi í rýmum.
Panelarnir eru með glerullarkjarna og ná mjög góðri hljóðgleypni (allt að Class A), sem gerir þá sérstaklega árangursríka í rýmum með mikla notkun.
Með fjölbreyttu úrvali af stærðum, formum og litum er hægt að sérsníða lausnir að hverju verkefni – allt frá látlausum veggklæðningum yfir í áberandi hönnunarelement.
Lumière Soft Panels henta vel í skrifstofur, skóla og opinber rými þar sem kröfur um góða hljóðvist og fagurfræði fara saman.
Sveigjanleg og áhrifarík lausn þar sem hljóðvist og hönnun vinna saman.
Skoða birgja